|
|
![]() |
Uxakerra |
Uxakerra á hraðbrautinni. Nýja Efnahagsbandalagshraðbrautin gerir ráð fyrir að menn mætist af varúð á blindhæðum, en varla datt þeim í Brussel í hug að uxakerra kæmi þvert á veg, í hægðum sínum. Ekkert mál, hér eiga allir rétt og ekkert síður uxar en blikkbeljur í landi þar sem bensínstöðvar eru einkum tómar og ekkert að hafa. Hjólreiðamenn halda sig á vegaröxl. Uxar, asnar, hænur, geitur, fólk, hjól, vagnar, konur,karlar, börn...allt í einu kraðaki.

![]() |
Innsetning |

Melónur og grasker, sett upp af listfengi við þjóðveginn til að örva sölu. Það gerist ekki betra í listaháskólum ef farið er út í form og liti. Hér má glöggt sjá að enginn ávöxtur er þar sem hann er fyrir tilviljun.

![]() |
Fílskjöt í morgunverđ |

,,Má bjóða þér fílskjöt í morgunverð?" spurði daman í þjóðvegarsjooppunni norðan við Bulewayo í Zimbabwe þegar gest bar að garði. Hún nagaði langa þurra ræmu og satt að segja var hún álíka spennandi á bragðið og harðfiskur, sem sagt góð, þegar maður er kominn upp á lagið. ,,Svo þið borðið fíla hér?" spurði ég. ,,Auðvitað". Auðvitað.

![]() |
Svokallađ trikkskot |

Myndavélin gerir margar kúnstir og fangar samspil ljóss og skugga við pálmalundinn.

![]() |
Horft á ađkomumenn |

Konungur dýranna virðir fyrir sér hóp aðkomumanna. Fimm metrar eru í bílinn sem er þéttsetinn ferðamönnum sem dást að syfjulegum svipnum. Hann er vel falinn í grasinu, en kattavinir munu þekkja eyrnablakið sem gefur til kynna að hann fylgist líka með þeim sem læðast að aftan frá.

![]() |
Táknmál fyrir alla í Zimbabwe |
Í Zimbabwe hafa þau gefið út einfalda táknmálsorðabók fyrir almenning svo hægt sé að læra undirstöðuatriðin í því að tala við heyrnarlausa. Einföld bók, ódýr og kennir undirstöðuatriðin. Í Zimbabwe, Botswana og Namibíu eru sjónvarpsfréttir táknaðar á táknmáli jafnóðum og þær eru fluttar heyrandi. Það er ekki hægt á Íslandi.

![]() |
Umferđarskilti í Zimbabawe, handverk |

Þau hafa sterkan persónulegan svip, ekki þessi stöðluðu skilti sem eru eins um allan heim, heldur dregin skýrum dráttum hagleiksfólks sem túlkar atriði úr umferðarmenningunni með penslum sínum. Ekkert skilti alveg eins og það næsta. Hér er það gangbraut, en skoðið hér hvernig varað er við ,,máluðum hundum".

![]() |
Einkaritarafuglinn |

Hvers vegna hann heitir Einkaritarafuglinn (Secretary bird) er algjörlega vonlaust að ráða af útlitinu. En hann er háfættur og með ansi langt stél og vappar virðulega við andapollinn.

![]() |
Kristilega kćrleiksblómin spretta... |

kringum hitt og þetta...eins og til dæmis antilópurnar í Chobe garðinum í Botswana. Þarna má glöggt sjá hvernig þær felast fyrir rándýrum og rugla í ríminu með því að standa þétt saman. Hvað er hvað í þessu kraðaki? er spurning sem ungt svangt ljón hlýtur að þurfa að spá vandlega í áður en lagt er til atlögu.

![]() |
Umgengni viđ fíla |

Reiður fíll er hættulegur. Skapstyggðina sýnir hann með því að blaka eyrum, sveifla rana og hrista sig ógurlega. Þá er best að víkja úr vegi og halda sig í hæfilegri fjarlægð. Svona hegðun er kölluð ,,þykjustuárás" því sjaldnast verður úr raunveruleg atlaga. Enda nægir þetta hvaða dýri sem er til að hafa sig á brott, líka ökumanni á safaríjeppa. En setji hann undir sig hausinn, leggi eyrun aftur og hlaupi í átt að manni er fátt til bjargar - nema maður komist fljótt í fjórða gír. Gangandi maður á enga möguleika þegar 5 tonn fara af stað í alvöru árás.

![]() |
Viltu gerast áskrifandi? |

Veftímaritið kemur til áskrifenda gjaldfrjálst sex sinnum á ári. Skráning hér.
Hér má skoða nokkur fyrri tölublöð:

![]() |
Lifandi myndir |



























