Fíll í ham

Hann var svo sannarlega í ham þessi sem sýndi hinum dýrunum við vatnsbólið hver ræður. Við sátum inni í bíl og horfðum á zebradýr, sverðhyrnur og gírafa njóta þess saman að svelgja úr vatnsbólinu. Jafnvel litlu stökkhyrnurnar sem alltaf eru síðastar í röðinni fengu að vera með. Þá kom hann. Ungur tarfur og ekki hress, einn á ferð og sýndi hinum hvar Davíð keypti ölið. Myndavélin fór á loft þegar hann skálmaði framhjá bílnum örstutt frá okkur og gírafarnir voru við það að bugast. Sverðhyrnur og zebrar hrukku undan en sá stóri sveifst einskis, drakk og fór í leirbað til að úða á sig sólarvörn!

Til baka
Stefán Jón Hafstein - stefanjon@islandia.is