Lífið utan fréttanna



Impala antilópan sem gengur hægum skrefum niður að vatnsbólinu er á mælikvarða fegurðar og tígulleika einhvers staðar ofan við 9.5. Paris Hilton fréttatímanna er kolfallin í samanburði, með 0.5 fyrir viðleitni. Hlutabréfavísitalan þýtur upp en ekki eins og Stökkhyrnan sem brunar eftir sléttunni svo allt annað í heiminum virðist standa í stað, hún tekur langstökk sem enginn hefur leikið eftir á Ólympíuleikum og allar stigatöflur íþróttafréttanna blikna. Samt er hún bara að leika sér, spyrjið um alvöru stökk þegar ljónin fara á stjá.

Lífverðirnir fyrir utan höll drottningarinnar kunna að vera skrýddir loðhúfum með brugðna branda, en Sverðhyrnan er með svo fögur horn að engir korðar standast samanburð. Þetta er Oryxinn, íbjúg og metralöng hornin eru ekki eina skartið, feldurinn fagurrauður í morgunsólinni en svörtu og hvítu mynstrin mála á hann grímu sem gerir svipinn voldugri öllum fréttaskýrendum. Apahjarðirnar við veginn eru veraldarvanari en samsafnið í Silfri Egils.

Ef zebrahestarinir vissu vissu um gengi KR-inga vildu þeir eflaust skipta um búning en fræknleikinn stendur Vesturbæingunum langum framar þar sem stóðið rennur niður hlíðina á bruni. Þar standa nashyrningar með furðulega smá augun og ofvaxin eyru, úða í sig grasi búnir að velta sér í leirbaði til að verjast sólinni; húðin eins og tækniundur frá vígvélabransanum, en hornin framan á þessum bryndrekum eru bara til að hræða og ógna á fengitímanum; ekki úthella blóði sakleysingja. Termítarnir hrúga upp leirnum kringum trjáboli og éta svo viðinn innan úr hrauknum, þessir sístarfandi verkamenn í aldingarði eilífðarinnar eiga vissulega við hermaura að etja, en gefast aldrei upp; í þessari genabyggingu er uppgjöf óþekkt. Hrúgan skal upp.

Aðeins ein skepna á jörðinni hefur fundið upp ,,sjálfsmorðsárás”.

Flóðhesturinn er kominn í tjörnina. Í nótt fór hann á stjá, marga kílómetra í myrkrinu til að fylla stóra tankinn af grasi. Nú stendur ekkert uppúr nema hluti af rauðum belg og nasaholur; hann er óskiljanlegur eins og ,,útrás í skjóli af skattaumhverfi áhættufjárfestingasjóða” og dularfullur eins og ,,mótvægisaðgerðir á landsbyggðinni” og virðist meinlaus eins og allt sem stendur í viðskiptakálfum fréttablaðanna. En flóðhesturinn er skaðvaldur sem drepur fleira fólk í Afríku en nokkurt annað dýr, að moskítóflugunni undanskilinni, sem er eins og hver önnur stýrivaxtaplága.

Mest spennandi leiksýning sem nú er í gangi er þegar konungur dýranna fær sér snarl. Mannskepnurnar raða sér á harðan bekk í litlu jarðhýsi og sitja hljóðar innan við rimla. Dauf skíma lýsir upp síðu úr nauti. Þungur fnykur af eyðimörk snarast fyrir horn, enginn vínsmökkunarblaðamaður gæti fundið upp lýsingu af þessari lykt frá þykkum feldi ljónsins. ,,Höfug angan af ryki, sól, skít og vottur af antílópublóði” er nærri lagi; makkinn fer fram úr villtustu draumum tískuhárgreiðslumanna. Þegar hin ljónin handan við girðinguna hafa veður af þessar veislu byrjar lágvært urr sem magnast í órofa hljóðmúr með ærandi hvin eins og þegar einkaþotur auðkýfinganna bjarga enn einu fréttaskúbbinu fyrir Séð og heyrt.

Við Krosshöfða eru jafn margir selir og Íslendingar; velta á klöppum í eigin saur. Endalausar breiður af skrækjandi, geltandi, hrínandi, veinandi, rorrandi og róandi selum. Lyktin lifir lengur en grillbrækjan ,,í beinni”, eins og þrálát ,,ekki frétt” þar sem ,,Valgerður segir að... eða Ingibjörg telur og Geir vill ekki....” Kóparnir byrjaðir að æfa bitið eins og ungliðar í fréttatilkynningu, urturnar afbrýðisamar eins og þingkonur sem aldrei komast í viðtöl og brimillinn stóri er eins og ráðherra í drottningarviðtali, rekur burt ungu karldýrin, óafvitandi um veiðimenn sem nálgast til að sker af honum liminn og senda í ástarlyf í Kóreu.

,,Sporin hræða” segja stjórnmálamenn þegar ekkert er í fréttum annað en venjuleg lúxusvandamál og ,,skilningsleysi stjórnvalda” á offitu kröfugerðarhópa. Sporin sem blasa við í hörðum steini fyrir ásjónu okkar eru hins vegar frá því fyrir 50 milljónum ára þegar risaeðlur fengu sér að drekka úr stöðuvatni og vekja upp furðulega tilfinningu fyrir tíma í samanburði við fréttatíma.

Til baka
Stefán Jón Hafstein - stefanjon@islandia.is