|
1.9.2010
Þróunarmál í Malaví og spilling á Íslandi
Ævar Kjartansson brá hljóðnemanum að vitum mér meðan ég var heima í sumarleyfi og tók viðtal um Malaví og fleira fyrir Rás 1. Hér er það. (40 mín.) |
|
15.8.2010
Dagbækur: Júlí-ágúst 2010
![]() Dagbækur frá Afríku: Vetrarmánuðina júní-ágúst 2010 Góðar fréttir frá Afríku. 700 fjallagórillur í Rúanda hafa það gott og fjölgar dag frá degi (eða því sem næst). Útrýmingarhætta virðist liðin hjá því friðun skapar þeim næðisstundir til að fjölga sér og éta banana. Samtímis skemmta þær fámennum ferðamannahópum sem greiða hátt gjald fyrir að koma í heimsókn klukkutíma á dag. Gjaldið rennur til apanna sjálfra (gegnum verndarsjóð) og nú fá fyrrverandi veiðiþjófar og górillumorðingjar starf við hæfi: Passa upp á fyrrum fórnarlömb. Górillurnar flakka um regnskóga Úganda, Kongó og Rúanda en virðast nú hafa fundið viðunandi stað fjarri stríðsmönnum heimsins. Og fleiri góðar fréttir. Lesa meira |
|
23.6.2010
Ný þáttaröð
Á myndbandasíðu stefanjon.is er nú komin fjögurra þátta röð um ferð um Botswana. Skoðuð eru náttúruundrin Okavango og Moremi friðlandið, dýrin, gróðurinn og náttúran. Vinsamlega sjáið hér að neðan. Til að lesa um þættina hvern fyrir sig, farið á fréttasíðu eða beint á myndbandasíðu.
1.hluti: Kalahari eyðimörkin, til móts við Botswana
Á myndbandasíðu stefanjon.is má skoða þættina alla. |
|
10.6.2010
Loksins HM!
![]() Drengirnir í Malaví elta tuðruna fram í síðdegisrökkrið og munu örugglega fylgjast með HM í beinni frá Suður Afríku. Hvar þeir komast í sjónvarp er þó annað mál. Aðeins 6 % íbúa landsins hafa rafmagn og af þeim aðeins brot aðgang að sjónvarpi. En barir, samkomusalir og velmegandi munu opna hús sín fyrir fótboltafíklum. Því miður er HM tæpast í Afríkuanda þótt haldin sé á meginlandinu í fyrsta sinn. Aðeins 11 þúsund miðar eru seldir í álfunni utan Suður Afríku - í álfu sem telur milljarð manna. Miðar eru seldir á netinu fyrst og fremst og þá með greiðslukortum, hvoru tveggja er fágætt meðal almennings í Afríku. Net? Greiðslukort? Loks gafst FIFA upp þegar ljóst var að í stað 500 þúsun gesta frá Evrópu yrðu aðeins 250.000, og setti óselda miða á venjulega lúgusölu í Suður Afríku. Þar var setið um miðana sem þó kosta langt umfram það sem réttur og sléttur heimamaður höndlar með. Og búið að hreinsa svo til í kringum vellina að götusalar sem ætluðu að græða vel komast ekki að fyrir þeim sem hafa keypt sér einkarétt á gróðanum. Meira að segja opnunarhátíðin er ,,alþjóðleg" með innfluttum skemmtikröfum í bland, maður hélt að Afríka ætti nóg handa heiminum að sýna. En boltinn rúllar og þá er bara að hafa gaman. |
|
29.5.2010
Borgin kvödd
![]() Borgarfulltrúi kveður að kvöldi kjördags meðan beðið er fyrstu talna. Frá og með 30. maí 2010 er í ég ekki lengur borgarfulltrúi í Reykjavík. Ég var kosinn með Reykjavíkurlista árið 2002 og aftur fyrir Samfylkingu 2007 og sagði ekki af mér þótt ég hafi verið í leyfi frá borgarstjórn síðustu þrjú ár. Mér fannst gaman að vera borgarfulltrúi. Fyrir athafnasaman mann er nóg að gera í borgarstjórn og hafi maður mikið undir eins og ég er gaman að lifa. Félagar mínir treystu mér fyrir formennsku í menntaráði og menningarmálanefnd, og síðan stýrði ég borgarráði um hríð og var jafnvel forseti borgarstjórnar í eitt ár. Það síðasta var leiðinlegt. Borgin krefst allrar athygli... Lesa meira |
|
26.5.2010
Vegna prófkjörs 2006
Vegna þess að kallað hefur verið eftir upplýsingum um styrki og kostnað við prófkjör 2006 hef ég sent Ríkisendurskoðun eftirfarandi erindi:
Lesa meira
|




















































